Njóttu lífsins...við lifum aðeins einu sinni!!!
20.06.2009 08:20:42 / thora80

Góðan dag......

Bara kominn 20.júní....sumarið er komið á fullt. Það verður komin júlí áður en maður veit af og sumarfríið líka. Robbi á að vera í fríi en hann er svo duglegur að vinna að hann tók aukavaktir á mánudags-, þriðjudags- og miðvikudagskvöld. Svo var hringt í hann áðan rétt fyrir 7 og hann beðinn um að taka vakt á flugvellinum í vopnaleit og svo er hann að fara að vinna annað kvöld. Ég má prísa mig sæla að fá að sjá hann milli vakta. En það er gott....allur aukapeningur kemur sér vel á þessum síðustu og verstu tímum (nei segi bara svona). Engin heilvita maður segir nei við aukavinnu eins og efnahagsástandið er núna. En hann kemur heim (í dag) vonandi ekki mikið seinna en 10 og þá skal haldið í bæinn því við ætlum að fara og kaupa okkur rúm. Gamla rúmið okkar (sem er nota bene 15 ára gamalt) er alveg að syngja sitt síðasta. Miðjan á því er að verða eins og gígur í eldfjalli. Og nær undantekningarlaust vakna ég þreytt og illt í bakinu. Þannig að okkur finnst vera kominn tími til að við fáum okkur nýtt. Við förum bæði í sumarfrí í júlí...10.júlí er síðasti vinnudagurinn minn og ég held að Robbi klári síðustu vaktina mánudaginn 13.júlí. Jakob kemur með flugi 1.júlí og verður til 16.ágúst. Við höfum ekkert planað en finnum okkur eflaust eitthvað til skemmtunar. Jæja held að ég reyni að leggja mig aftur....ekki eðlilegt að vera vöknuð kl 06:00 á laugardagsmorgni, amk finnst mér það ekki. Ég skora á alla sem lesa þetta blogg að fara í Langholtskirkju á morgun (sunnudaginn 21.júní) kl 11. Björk frænka verður með hugvekju og ég held að öllum sé hollt að hlusta á þá konu. Hún er mögnuð manneskja og mesti töffari og hetja sem ég þekki. Eigið góðan dag og njótið lífsins.
Björk töffari skrifaði
Elsku hjartans Þóran mín..takk fyrir fallegustu orðin til mín elskuleg og ég hlakka til að sjá þig á morgun.Eitt af því fáa sem ég set kröfur á er að eiga gott rúm því það er sko undirstaðan út í daginn,farðu og gerðu eittthvað í þessu,þannig að þér líði betur...og hvernig er svo með hitting mín kæra?Langar að fara að sjá þig.Ástarknús og kærleikur

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 68862