13.2.2008 05:14:37 / thora80
Magga Mín
Möggu kynntist ég á Laugum 1998 og höfum haldið vinskapnum síðan. Hún veit ALLT um mig og þekkir mig inn og út. Magga hefur alltaf verið til staðar fyrir mig hafi ég þurft á henni að halda og alltaf hlustað hafi ég þurft að létta á hjarta mínu, hella úr skálum reiði minnar nú eða bara grenja úr mér augun. Það líða oft margar vikur milli þess sem við heyrumst og en lengra milli þess sem við hittumst en það hefur aldrei haft áhrif á vinskapinn. Stundum þegar við höfum hringt í hvor aðra þá hefur hin sagt: Fékkstu hugboð?? Eða: Hef verið að hugsa rosalega til þín undanfarið. Mér þykir óendanlega vænt um Möggu og hún er yndisleg stelpa með stórt hjarta úr skíra gulli. Mennirnir í lífi Möggu, sem skipta hana mestu máli, eru þeir Gummi (húsbóndinn á heimilinu) Oddfreyr Ágúst....já eða bara Oddi, hann er stóri bróðir og töffari með meiru, svo er það miðju töffarinn hann Jón Guðni og loks sá allra allra minnsti óskírður Guðmundsson. Elsku vinkona takk fyrir allt, þú veist mér þykir vænt um þig.