13.2.2008 05:14:37 / thora80
Jónbjörg mín
Jónbjörgu kynntist ég í heimavistarskólanum á Laugum haustið 2000.
Jónbjörg er yndisleg, góð, traust, fyndin, algjör húmoristi og með gott
hjartalag. Hún falleg yst sem innst. Hún er ein af fáum sem þekki mig
út og inn, þekkir kosti mína og galla....ALLA með tölu!! Hún hjálpaði
mér svo mikið við undirbúning brúðkaups okkar Robba og það er henni og
Guðna að miklum hluta að þakka að dagurinn varð ógleymanlegur. Jónbjörg
og Guðni eiga tvo fallega stráka þá Sindra Blæ og Hannes Bjarnar. Besta
vinkona sem hægt er að eignast. Þykir svo óendanlega vænt um þig elskan
:*